1. Forsíða
  2. Dægurspor á rafrænu formi

Dægurspor á rafrænu formi

Dægurspor rekur spor dægurtónlistar allt frá bænda- og hirðdönsum miðalda til stórsveita eftirstríðsára og danshljómsveita 6. áratugar. Komið er við í Vínarborg þar sem valsinn dunaði snemma á 19. öld og fór eins og eldur í sinu um hinn vestræna heim. Þá er fjallað um polka, óperettur, lúðrasveitir, ragtime, djass, tangó, revíur, söngflokka, stríðsáratónlist og íslensk sjómanna- og síldarlög.

Dægurspor skoða einnig tíðaranda, hin margvíslegu litbrigði mannlífsins. Nefna má rómantíkina, fallega tímabilið, vesturferðir, suðupott ólíkra þjóðabrota í New Orleans, jarðveg þann sem tangóinn spratt úr en einnig það samfélag á Íslandi sem gat af sér M.A. kvartettinn, Litlu fluguna, Ingibjörgu Þorbergs, Jónas og Jón Múla, Eyjalögin, Hauk, Ellý, Ragnar og KK-sextettinn.

Dægursporum fylgir öflugt kennaraefni á vef Menntamálastofnunar. Einnig hlustunarefni og verkefni á vef.

skrifað 11. DES. 2017.