1. Forsíða
  2. Dagsetningar samræmdra könnunarprófa

Dagsetningar samræmdra könnunarprófa

Menntamálastofnun og mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa ákveðið að samræmd könnunarpróf í 9. og 10. bekk árið 2017 verði haldin eftirfarandi daga:

Samræmd könnunarpróf í 9. og 10. bekk skólaárið 2016-2017

Vikudagur

dagsetning

bekkur

prófhluti

Þriðjudagur

7. mars 2017

9. og 10. bekkur

fyrri hluti

Miðvikudagur

8. mars  2017

9. og 10. bekkur

fyrri hluti

Fimmtudagur

9. mars 2017

9. og 10. bekkur

seinni hluti

Föstudagur

10. mars 2017

9. og 10. bekkur

seinni hluti

Í báðum árgöngum verða íslenska og hluti af ensku prófuð fyrri daginn en stærðfræði og hluti ensku síðari daginn.

Próftími er tvær og hálf klukkustund. Tvær próflotur verða haldnar hvorn dag en það er gert til að skólar geti skipt árgangi í tvennt, sé þess þörf. Á það einkum við um stærri skóla þar sem fjöldi nemenda er meiri en fjöldi tækja. 

Skólastjóri skipuleggur hvenær hver nemandi þreytir próf. Skólar hafa svigrúm til að hefja próf á bilinu 8:00 til 8:45 og miðast því upphaf síðari lotunnar við það hvenær fyrri lota hefst. 

skrifað 06. JAN. 2017.