1. Forsíða
  2. Dagur leikskólans

Dagur leikskólans

Framundan er 6. febrúar en sá dagur er árlega tileinkaður leikskólum.

Leikskólinn gegnir mikilvægi hlutverki í námi og þroska barna því þar er lagður nauðsynlegur grunnur að námsferlinu.

Þessi grunnur er byggður upp með fjölbreyttum hætti í leikskólum landsins og við megum vera stolt af því frábæra starfi sem þar fer fram.

Við óskum starfsfólki leikskóla til hamingju með þeirra góða starf og hvetjum kennara og annað starfsfólk leikskóla til að vekja athygli á starfi sínu á degi leikskólans.

skrifað 01. FEB. 2018.