1. Forsíða
  2. Dagur leikskólans er í dag

Dagur leikskólans er í dag

Út er komin rafræn útgáfa af bókinni Markviss málörvun: þjálfun hljóðkerfisvitundar eftir Helgu Friðfinnsdóttur, Sigrúnu Löve og Þorbjörgu Þóroddsdóttur. Bókin er aðgengileg bæði sem flettibók og á pdf-formi

Bókin hefur verið mikið notuð í leikskólum landsins um árabil en hefur verið ófáanleg um nokkurt skeið. Það er því sönn ánægja og vel viðeigandi að tryggja aðgang að þessu góða námsefni á degi leikskólans. 

Við óskum starfsfólki leikskóla til hamingju með daginn og góðs gengis í þeirri mikilvægu vinnu við að efla málþroska barna.

Þá eru leikskólakennarar, stjórnendur og starfsfólk hvatt til gera sér dagamun í tilefni dagsins og setja myndir inn á #dagurleikskolans. 

 

 

 
 

 

 

 

skrifað 06. FEB. 2018.