1. Forsíða
  2. Ég og sjálfsmyndin | Nýtt námsefni

Ég og sjálfsmyndin | Nýtt námsefni

Út er komin bókin Ég og sjálfsmyndin sem er einkum ætluð nemendum á miðstigi grunnskólans.

Bókin fjallar um ýmislegt í nærumhverfi nemandans og skiptist hún í átta sjálfstæða kafla. Einn kaflinn fjallar um sjálfsmyndina og velt er upp spurningunni „hver er ég?“ og „af hverju er ég eins og ég er?“ Síðan tekur við umfjöllun um félagsmótun, helstu félagsmótunaraðila og hópa sem við tilheyrum. Þarnæst er fjallað um lýðheilsumál eins og mataræði, hreyfingu og svefn og áhrif þessara þátta á andlega líðan. Kynþroski og klám fá sína umfjöllun, svo og ýmis vandamál í nærumhverfinu svo sem ofbeldi og vímuefni. Bókin endar síðan á stuttum kafla með hugleiðingum um hvað þú vilt verða en starfs- og menntunarmöguleikar hafa aldrei verið jafn fjölbreyttir og nú á dögum.

Bókin hefur verið gefin út sem rafbók en prentuð útgáfa er væntanleg sumarið 2022. 

skrifað 19. MAí. 2022.