Menntamálastofnun hefur í samstarfi við Lions-hreyfinguna ákveðið að færa öllum leikskólum landsins gjafapakka sem inniheldur læsishvetjandi námsefni fyrir börn á leikskólaaldri. Í Þjóðarsáttmála um læsi er lögð áhersla á að efla læsi 2-16 ára barna og er námsefnið liður í að styðja við leikskóla til að vinna að undirstöðuþáttum læsis.
Lions-hreyfingin mun sjá um dreifing námsefnisins en Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tekur þátt í fyrstu afhendingunni sem fram fer fimmtudaginn 23. ágúst kl. 11 í leikskólanum Geislabaug, Kristnibraut 26, 113 Reykjavík.
Dagskrá:
1. Þóra Jóna Jónatansdóttir leikskólastjóri Geislabaugs opnar athöfnina.
2. Ávarp Arnórs Guðmundssonar forstjóra Menntamálastofnunar.
3. Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra Lilju Alfreðsdóttur. Afhending námsefnispakka til leikskólans Geislabaugs.
4. Leikskólabörn taka lagið.
5. Ávarp Bjargar Báru Halldórsdóttur fjölumdæmisstjóri Lions.
6. Ávarp Guðrúnar Bjartar Yngvadóttur alþjóðaforseta Lions.
7. Leikskólabörn taka lagið.