1. Forsíða
  2. Fagráð eineltismála og upplýsingaveita um eineltismál og ráðgjöf

Fagráð eineltismála og upplýsingaveita um eineltismál og ráðgjöf

Fagráð eineltismála vinnur með mál nemenda í grunn- og framhaldsskólum. Til þess geta leitað nemendur, foreldrar/forráðamenn, starfsfólk skóla og aðrir sem starfa með börnum í starfi sem hefur stoð í grunnskólalögum.
Hægt er að vísa eineltismálum til fagráðsins ef ekki tekst að finna fullnægjandi lausn á þeim innan skóla eða sveitarfélags eða vegna meints aðgerðaleysis sömu aðila. Skal þá fagráðið veita ráðgefandi álit á grundvelli þeirra gagna og upplýsinga sem því berast. Öll mál sem send eru til fagráðsins eru skoðuð og metin og síðan tekin fyrir í fagráði að uppfylltum skilyrðum um málsmeðferð. Einnig veitir fagráðið eða starfsmaður þess ráðgjöf í eineltismálum og hægt er að hringja í síma 514 7500 eða senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]
 
Til að styðja betur við starf fagráðs eineltismála birti Menntamálastofnun í vorbyrjun á vef sínum upplýsingar um eineltismál þar sem hægt er að nálgast upplýsingar og góð ráð ásamt teiknimyndbandi um einelti. Vonast er til að upplýsingarnar geti nýst skólasamfélaginu til að auka vitund og þekkingu á eineltismálum með hag og vellíðan nemenda að leiðarljósi, en vefurinn er hluti af miðlun fagráðs eineltismála á upplýsingum um starfsemi sína og ráðgjöf varðandi eineltismál.
 
Nánari upplýsingar um fagráðið og upplýsingaveituna má finna á vef Menntamálastofnunar.

skrifað 31. áGú. 2020.