1. Forsíða
  2. Fjarfundur vegna niðurstaða samræmdra könnunarprófa

Fjarfundur vegna niðurstaða samræmdra könnunarprófa

Boðið verður upp á fjarfund sem er ætlaður skólastjórum grunnskóla og þeim sem halda utan um að sækja einkunnir í Skólagátt. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 24. október kl. 10.00.

Þar verður farið yfir hvernig einkunnir í samræmdum könnunarprófum eru sóttar í Skólagátt, farið yfir einkunnablaðið og sýnidæmi. Þá gefst tækifæri fyrir þátttakendur að senda inn fyrirspurnir. 

Áhugasamir sendi tilkynningu um þátttöku á netfangið [email protected]

skrifað 23. OKT. 2017.