1. Forsíða
  2. Flugvélar | Nýtt námsefni

Flugvélar | Nýtt námsefni

Flugvélar er lestrarbók í flokknum Milli himins og jarðar og er á fjórða þyngdarstigi.

Í bókinni er ýmiss konar fróðleikur um flugvélar og mikið lagt upp úr ljósmyndum og teikningum sem styðja við textann og vekja áhuga og forvitni. Neðst á hverri síðu eru spurningar til þess ætlaðar að staldra við og ræða það sem lesið var um.

Spurningar á flugvélavæng leiða lesandann á næstu síðu þar sem svarið er að finna. Aftast í bókinni eru nokkur verkefni.

skrifað 10. SEP. 2020.