1. Forsíða
  2. Gleraugun hans Góa | Ný verkefni

Gleraugun hans Góa | Ný verkefni

Gói fær senda gjöf frá afa á afmælinu sínu. Verður auðveldara fyrir Góa að eignast vini eða verður lífið flóknara en það var? 

Bókin Gleraugun hans Góa er hluti af léttlestrarflokknum Auðlesnar sögur fyrir unglingastig.  Höfundur er Arndís Þórarinsdóttir og myndskreytingar eru eftir Árna Jón Gunnarsson.

Verkefni með bókinni hafa nú bæst við verkefnapakka sem fylgir léttlestrarflokknum og eru kennarar hvattir til að skoða verkefnin sem eru á rafrænu formi til útprentunar.

Aðrar bækur í léttlestrarflokknum eru Náttfiðrildi, Lyginni líkast, Strákaklefinn, Fimbulvetur, Leynifundur í Lissabon, Hauslausi húsvörðurinn, Draugaljósið, Það kom að norðan og Á rás.

             

skrifað 13. DES. 2022.