1. Forsíða
  2. Halló heimur 2 | Útgáfufréttir

Halló heimur 2 | Útgáfufréttir

 

NEMENDABÓKIN Halló heimur 2 er í prentsmiðju og er væntanleg þaðan í lok janúar. Á meðan við bíðum eftir gripnum kynnum við rafbókarútgáfuna sem er aðgengileg á vefnum okkur og bíður eftir að komast í hendur grunnskólabarna.

KENNSLULEIÐBEININGAR  hafa verið birtar á vefnum og eru vel á veg komnar en við munum halda áfram að gæða þær góðu og gagnlegu efni fram á vor til að styðja við innihaldsríkt nám, fjölbreytta kennslu og skapandi kennsluhætti.

VERKEFNABÓKIN er einnig í prentsmiðjunni og er væntanleg í hús í byrjun febrúar. Rafbókarútgáfan hefur verið gerð aðgengileg á vefnum okkar.  

Gangi ykkur vel og góða skemmtun.

skrifað 18. JAN. 2022.