1. Forsíða
  2. Halló heimur 3 er komin út

Halló heimur 3 er komin út

Halló heimur 3 er kjarnaefni í samfélags- og náttúrugreinum fyrir yngsta stig grunnskóla.

Bókin er níu kaflar, fjórir í náttúrugreinum og fimm í samfélagsgreinum. Kaflarnir eru Himingeimurinn, Kraftur og hreyfing, Heilbrigð sál í hraustum líkama, Í blóma lífsins, Örugg í umhverfinu, Eldfjallaeyjan Ísland, Ég er nóg og Ísland er land þitt. 
 
Í upphafi hvers kafla eru markmið hans sett fram ásamt áhugaverðri opnumynd sem gefur innsýn í efni kaflans. Opnumyndin býður upp á ýmsa möguleika í upphafi kafla. Bókin er ríkulega myndskreytt með teikningum og ljósmyndum sem tengjast vel textanum. Á hverri opnu eru dregin fram 3 ný orð sem verðugt er að vinna með í tengslum við efnið til að auka orðaforða nemenda. Aftast í bókinni eru einfaldar útskýringar á orðunum. Hverjum kafla lýkur með hugmyndum að umræðum og verkefnum.

Námsefninu fylgja ítarlegar kennsluleiðbeiningar á vef. Þar eru upplýsingar um tengingu námsefnisins við m.a. hæfniviðmið og lykilhæfni aðalnámskrár, grunnþætti og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Einnig hefur verið tekinn saman fróðleikur um efni hvers kafla, áhugaverða tengla og umræðupunkta tengda efni kaflans.
Útfærslur á fjölmörgum verkefnum í tengslum við efni kaflanna eru útfærðar á skemmtilegan hátt í kennsluleiðbeiningum. Verkefnin tengjast öðrum námsgreinum eins og íslensku, hlustun, ritun, orðaforðavinnu, tölum, talnavinnu, stærðfræði og útikennslu.

Verkefnabók sem fylgir námsefninu er væntanleg. 

 

skrifað 12. SEP. 2023.