1. Forsíða
  2. Hönnun könnun | Nýtt námsefni

Hönnun könnun | Nýtt námsefni

Kennsluefninu Hönnun Könnun er ætlað að þjálfa nemendur í greinandi hugsun samhliða því að vinna á skapandi hátt.

Um er að ræða 17 verkefni sem þjálfa nemendur m.a. í mynd- og táknlæsi, færni í greinandi, gagnrýninni og skapandi hugsun og fjölbreyttum leiðum við hugmyndavinnu, skissugerð og hönnunarvinnu.

Lögð er áhersla á tengingu grafískrar hönnunar við grunnþættina sex og æfingar hugsaðar og flokkaðar út frá þeim og ýmsum snertiflötum þeirra við grafíska hönnun.
Kennsluefnið er ætlað kennurum í grafískri hönnun og myndmennt á unglingastigi grunnskóla.

skrifað 28. SEP. 2020.