1. Forsíða
  2. Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2017

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2017

Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2017 verður dagana 1.-30. nóvember. Hver skóli ákveður þó lengd innritunartímabils síns skóla og er það í sumum tilfellum lengra en sameiginlegt tímabil skólanna. Upplýsingar um innritunartímabil hvers skóla má sjá undir flipanum „yfirlit skóla“ þegar komið er inn í umsókn. Sótt er um á menntagatt.is.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514 7500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

skrifað 20. SEP. 2016.