1. Forsíða
  2. Innritun í framhaldsskóla lokið

Innritun í framhaldsskóla lokið

Á miðnætti 9. júní var lokað fyrir umsóknir nýnema um framhaldsskóla á haustönn 2017. Alls sóttu 4.169 nemendur um skólavist en þar af höfðu 148 sótt um á starfsbrautir í febrúar.

Taflan hér fyrir neðan sýnir fjölda umsókna í fyrsta og öðru vali eftir skólum. Röðun skólanna fer eftir fjölda umsókna sem þeim bárust samanlagt. Flestar umsóknir bárust Verzlunarskóla Íslands, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og Kvennaskólanum. Eins og sjá má fengu aðrir skólar, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni, mikinn fjölda umsókna og mun fleiri en nemur þeim skólaplássum sem þeir bjóða. Skólarnir raða umsóknum eftir einkunnum, óháð því hvort nemendur völdu þá í fyrsta eða öðru vali.

Næstu daga vinna skólarnir með umsóknir sínar en að því loknu tekur Menntamálastofnun við og finnur þeim nemendum skólavist sem ekki fá inni í skólum sem þeir sóttu um. Stofnunin hefur tíma til 27. júní til að klára ferlið, þótt vonast sé til að hægt verði að birta niðurstöður fyrr. Þegar þær liggja fyrir verður sett tilkynning á Facebook-síðu innritunar Ráðgjöf vegna innritunar í framhaldsskóla og heimasíðu Menntamálastofnunar www.mms.is

Einnig geta nemendur fylgst með stöðu umsókna sinna á Menntagáttinni www.menntagatt.is.

 

skrifað 12. JúN. 2017.