1. Forsíða
  2. Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Skráningar vegna næstu íslenskuprófa fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt hefjast 23. september og standa til 4. nóvember.  Mímir - Símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt. 

Næstu íslenskupróf verða sem hér segir:

  • Akureyri – þriðjudaginn 19. nóv. kl 13:00
  • Ísafjörður – miðvikudaginn 20. nóv. kl. 13:00
  • Egilsstaðir – fimmtudaginn 21. nóv. kl. 13:00
  • Prófalota í Reykjavík verður 25. – 29. nóv kl. 09:00 og 13:00

Um prófið
Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verður haldið tvisvar á ári, að vori og hausti.  Prófið miðast við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins.  Markmiðin eru að umsækjandi þarf:

  • að geta bjargað sér við daglegar aðstæður í skóla, vinnu og einkalífi;
  • að geta bjargað sér við óvæntar aðstæður
  • að hafa öðlast nægilegt vald á orðaforða til að geta tekið þátt í umræðum um kunnugleg málefni
  • að geta skilið einfaldar samræður milli manna;
  • að geta lesið stutta texta á einföldu máli um kunnugleg efni
  • að geta skrifað stuttan texta á einföldu máli um kunnugleg efni
  • að geta greint aðalatriði í ljósvakamiðlum, sjónvarpi og útvarpi, þegar um kunnugleg efni er að ræða.

Í prófunum skal reynt á tal, hlustunarskilning, ritun og lesskilning.
Ekki verður gefin einkunn, heldur aðeins tilkynnt hvort próftaki hafi staðist lágmarkskröfur.

Sýnispróf/Practice examination

Applying for Icelandic citizenship?  Further information at www.utl.is

skrifað 05. SEP. 2019.