Skráningar vegna næstu íslenskuprófa fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt hófust 1. mars og standa til 10. maí. Athugið að ekki er hægt að skrá sig utan skráningartímabils. Mímir – símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskuprófið. Prófgjald er 35.000kr og óendurgreiðanlegt eftir skráningu. Niðurstöður verða sendar rafrænt á netfang sem skráð er við skráningu. Skráning í prófið er rafræn – skráning
Prófin verða haldin sem hér segir:
Akureyri 23. maí 2022 kl. 13:00.
Egilsstaðir 25. maí 2022 kl. 13:00.
Ísafjörður 27. maí 2022 kl. 13:00.
Reykjavík, vikuna 30. maí til 3. júní 2022 kl. 09:00 og 13:00.