Skráningar vegna næstu íslenskuprófa fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eru frá 19. september og standa til 4. nóvember. Athugið að ekki er hægt að skrá sig utan skráningartímabils. Mímir hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskuprófið. Prófgjald er 35.000kr og óendurgreiðanlegt eftir skráningu. Niðurstöður verða sendar rafrænt á netfang sem skráð er við skráningu. Skráning í prófið er rafræn – skráning.
Prófin verða haldin sem hér segir:
Reykjavík, vikuna 21. - 25. nóvember 2022 kl. 09:00 og 13:00.
Akureyri 28. nóvember kl. 13:00.