Skráningar vegna næstu íslenskuprófa fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt hefjast 21. september og standa til 2. nóvember. Athugið að ekki er hægt að skrá sig utan skráningartímabils. Mímir – símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskuprófið. Prófgjald er 40.000kr og óendurgreiðanlegt eftir skráningu. Niðurstöður verða sendar rafrænt á netfang sem skráð er við skráningu.
Skráning í prófið er rafræn en hér er hlekkur á skráningu.
Prófin verða haldin sem hér segir:
Akureyri 15. nóvember 2023 kl. 13:00.
Reykjavík frá 20. – 27. nóvember 2023 kl. 09:00 og 13:00.