1. Forsíða
  2. Kennsluleiðbeiningar með Lesrúnu 2

Kennsluleiðbeiningar með Lesrúnu 2

Út eru komnar kennsluleiðbeiningar með Lesrúnu 2, námsefni ætlað 4. bekk með sérstaka áherslu á lesskilning.

Höfundar efnisins eru Anna Þóra Jónsdóttir og Kristjana Pálsdóttir. 

Í efninu koma fram hugmyndir um hvernig hægt er að útvíkka efnisþættina í bókinni og kveikja áhuga nemenda á efninu. Í hverjum kafla eru fylgiskjöl með fjölbreyttum og skapandi verkefnum í tengslum við textana í nemendabókinni.

Í leiðbeiningunum eru settar fram hugmyndir að ritunar- og málfræðiverkefnum og mikið lagt upp úr vinnu með orðaforða áður en textinn sjálfur er lesinn, hugað að bakgrunnsþekkingu, ályktun um merkingu óþekktra orða og bent á leiðir til að greina aðalatriði í texta. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, s.s. samræður, hópavinnu, sköpun o.fl.

 

 

skrifað 28. áGú. 2020.