1. Forsíða
  2. Kennsluleiðbeiningar með Litlu-Lesrúnu

Kennsluleiðbeiningar með Litlu-Lesrúnu

Út eru komnar kennsluleiðbeiningar með Litlu-Lesrúnu þar sem fram koma hugmyndir um hvernig hægt er að útvíkka efnisþættina í bókinni og kveikja áhuga nemenda á efninu.

Mikið er lagt upp úr vinnu með orðaforða áður en textinn sjálfur er lesinn, hugað að bakgrunnsþekkingu, ályktun um merkingu óþekktra orða og bent á leiðir til að greina aðalatriði í texta.

Í leiðbeiningunum eru einnig settar fram hugmyndir að ritunar- og málfræðiverkefnum í tengslum við textana í bókinni. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, s.s. samræður, hópavinnu, sköpun o.fl.

skrifað 23. áGú. 2019.