Í kennsluleiðbeiningunum eru m.a. hugmyndir um hvernig hægt er að útvíkka efnisþættina og kveikja áhuga nemenda á efninu.
Orðspor 3 er þriðja og síðasta bókin af heildstæðu námsefni í íslensku fyrir miðstig grunnskóla. Í bókinni læra nemendur um framsögn, ljóðaslamm, fornleifafræði, læsi, ævintýri og málsnið. Nemendur grúska í mismunandi textagerðurm og eflast í lestri og ritun. Þá þjálfast þeir einnig í því að taka rökstudda afstöðu og að komast að málamiðlunum.
Bókin skiptist í sjö kafla:
-
Hækkaðu röddina!
-
Geggjað slamm hjá þér
-
Aftur til fortíðar
-
Læsi og lesfimi
-
Eru Grimmsævintýrin grimm?
-
Af máli má manninn þekkja
-
Skólanum hefur borist bréf