1. Forsíða
  2. Kynning á Yes we can | Höfundur efnis kynnir

Kynning á Yes we can | Höfundur efnis kynnir

Í dag fer fram rafræn kynning á námsefninu Yes we can 5 á Zoom. Kynningin hefst kl. 14:30 en hér er hlekkur á kynninguna

Louise Holst Tollan, annar höfundur efnsins, mun kynna hugmyndafræði og uppbyggingu efnisins og fer kynningin fram á ensku. Eftir þá kynningu er áætlaður tími í umræður bæði við Louise og eins varðandi vefefnið sem fylgir Yes we can efninu.

Yes we can 5 er fyrsta bókin sem gefin er út í væntanlegum flokki sem inniheldur heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta – og miðstig en alls verða bækurnar sex talsins. Í námsefninu er lögð áhersla á að  auka hæfni nemenda til þess að nota tungumálið sem lifandi verkfæri í fjölbreyttum tilgangi og við ólíkar aðstæður. Efnistök eru úr hversdagslífi nemenda og áhersla er lögð á samfelldan texta sem höfðar til áhugasviðs þeirra ásamt fjölbreyttum verkefnum sem byggja á textanum.

Efnið samanstendur af nemendabók, verkefnabók, rafbók, hljóð – og hlustunarefni, gagnvirkum æfingum og kennsluleiðbeiningum á vef.

Efnið á vef Menntamálastofnunar.
 

skrifað 13. SEP. 2021.