1. Forsíða
  2. Kynningarfundir Menntamálastofnunar

Kynningarfundir Menntamálastofnunar

Samræmd könnunarpróf í 9. og 10. bekk – kynningarfundir

Menntamálastofnun stendur fyrir kynningarfundum um samræmd könnunarpróf á rafrænu formi í 9. og 10. bekk vorið 2017. Fundirnir eru ætlaðir fræðslustjórum, skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki skóla sem kemur að framkvæmd prófanna. Kynnt verður væntanleg rafræn fyrirlögn á samræmdum könnunarprófum og þær breytingar sem verða gerðar á samræmdum könnunarprófum vorið 2017. Áætlað er að fundurinn taki klukkutíma og gefst tækifæri til fyrirspurna.

Dagsetning tími fundarstaður bæjarfélag
6. febrúar 15:00 Hólabrekkuskóli Reykjavík
7. febrúar 15:00 Grunnskóli Ísafjarðar Ísafjörður
8. febrúar 15.15 Kópavogsskóli Kópavogur
9. febrúar 14:15 Akurskóli Reykjanesbær
10. febrúar 13:15 Sunnulækjarskóli Selfoss
13. febrúar 15:00 Hjálmakletti Borgarnes
14. febrúar 13:00 Grunnskóli Vestmannaeyja Vestmannaeyjar
16. febrúar 14:30 Grunnskóli Grundarfjarðar Grundarfjörður
21. febrúar 14:00 Grunnskóli Ísafjarðar  Ísafjörður

Allir fundir verða opnir þannig að fundargestir geta valið þann fundarstað sem hentar þeim.

skrifað 06. FEB. 2017.