1. Forsíða
  2. Landafræði tónlistar hefur verið uppfærður

Landafræði tónlistar hefur verið uppfærður

Nú er búið að uppfæra vefinn Landafræði tónlistarinnar og bæta við hljóðefni.

Á vefnum gefst færi á að kynnast framandi tónlist og menningu frá sex löndum: Kína, Krít, Spáni, Túnis, Indlandi og Tyrklandi. Áhersla er lögð á tónlistina en einnig það menningarlega samhengi sem hún er sprottin úr.

Ýmis verkefni, kort, ljósmyndir, myndskeið og tónlist styðja við efnið og er meirihluti textans hljóðlesinn. Vefurinn miðast við mið- og unglingastig og nýtist í tónmennt sem og samfélagsgreinum.

skrifað 05. SEP. 2022.