1. Forsíða
  2. Lausnabækur fyrir Fyrsta, Annan og Þriðja Smell

Lausnabækur fyrir Fyrsta, Annan og Þriðja Smell

Útbúnar hafa verið lausnabækur fyrir Fyrsta, Annan og Þriðja smell og þær settar inn á læst svæði kennara á vef Menntamálastofnunar.

Bækurnar eru ætlaðar til lesskilningsþjálfunar fyrir nemendur á miðstigi. Nemendur lesa fjölbreytta texta og vinna verkefni í tengslum við efnið. Hver opna er sjálfstæð og hægt að velja þær eftir áhuga nemenda og áherslum kennara.

Höfundar eru Ása Marin Hafsteinsdóttir og Kristjana Friðbjörnsdóttir en þær hafa einnig skrifað bækurnar Orðspor 1, 2 og 3. Myndskreytingar eru eftir Láru Garðarsdóttur.

 

skrifað 23. áGú. 2019.