1. Forsíða
  2. Lengi býr að fyrstu gerð - læsisplakat

Lengi býr að fyrstu gerð - læsisplakat

Menntamálastofnun hefur útbúið læsisplakat sem inniheldur góð og handhæg ráð sem hægt er að grípa í til að styðja við málþroska barna. Þau eru ætluð bæði fyrir kennara og foreldra.

Leikskólastigið er mikilvægt í læsisferlinu því þar er lagður mikilvægur grunnur í undirstöðuþáttum læsis. Þar vegur málþroskinn þyngst og því nauðsynlegt að hlúa vel að honum á þeim mikla grósku- og framfaratíma sem leikskólaaldurinn er.

Til að stuðla að því að allir séu meðvitaðir um hvernig þeir geta stutt sem best við málþroska og læsisnám barna sinna voru læsisráðin send í alla leikskóla. 

 

skrifað 20. OKT. 2017.