1. Forsíða
  2. Lengi býr að fyrstu gerð

Lengi býr að fyrstu gerð

Leikskólastigið er mikilvægt í læsisferlinu því þar er lagður mikilvægur grunnur í undirstöðuþáttum læsis. Þar vegur málþroskinn þyngst og því nauðsynlegt að hlúa vel að honum á þeim mikla grósku- og framfaratíma sem leikskólaaldurinn er.

Læsisveggspjald Menntamálastofnunar inniheldur góð og handhæg ráð sem hægt er að grípa í til að styðja við málþroska barna. Þau eru ætluð bæði fyrir kennara og foreldra.

Veggspjaldið má einnig finna á ensku og pólsku.

 

skrifað 10. áGú. 2018.