1. Forsíða
  2. Listin að lesa og skrifa - vinnubækur

Listin að lesa og skrifa - vinnubækur

Vinnubækur við lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa hafa verið endurútgefnar og eru nú með tengikrókum og hjálparlínum.

Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, lestrarbækur, örbækur, lestrarspil, kennsluleiðbeiningar o.fl. Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er einkum ætlað nemendum sem þarfnast hægrar og kerfisbundinnar innlagnar á hljóðum og bókstöfum og markvissrar þjálfunar í tengingu hljóða til að ná valdi á lestrartækninni. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu.

Listin að lesa og skrifa - vinnubók 1

Listin að lesa og skrifa - vinnubók 2

Listin að lesa og skrifa - vinnubók 3 

Listin að lesa og skrifa - vinnubók 4

Sækja má verkefni og kennsluhugmyndir á veftorgið Íslenska á yngsta stigi.

skrifað 25. áGú. 2017.