1. Forsíða
  2. Ljóðaflóð – Ljóðasamkeppni grunnskólanema

Ljóðaflóð – Ljóðasamkeppni grunnskólanema

Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember næstkomandi efnir Menntamálastofnun til ljóðasamkeppni grunnskólanema, Ljóðaflóð, í samvinnu við KrakkaRúv. Að þessu sinni virkjum við sköpunarkraftinn og tökum við ljóðum á því ljóðformi sem þátttakendur kjósa. Það geta verið bundin ljóð og óbundin, ferskeytlur, limrur, hækur, tönkur, myndljóð og fleira, þ.e. sannkallað ljóðaflóð!

Dómnefnd velur bestu ljóðin á yngsta stigi, mið- og unglingastigi og fá vinningshafar afhent bókaverðlaun og viðurkenningarskjal. Úrslit keppninnar verða kunngjörð á vef Menntamálastofunar og einnig á KrakkaRúv þar sem vinningsljóðin verða lesin upp.

Við hvetjum alla kennara til að undirbúa nemendur til þátttöku; lesa ljóð og ræða upplifun, innihald og mismunandi ljóðform. Á Ritunarvefnum er margs konar fróðleikur um ljóð ásamt skemmtilegum fræðslu- og hvatningarmyndböndum um skapandi skrif.

Nemendur geta annaðhvort samið sitt eigið ljóð eða haft samvinnu við aðra. Þá væri t.d. upplagt að bekkurinn skoðaði í sameiningu þau ljóð sem senda á í keppnina en vanda þarf til verka hvað varðar innihald, frágang og uppsetningu. Umfjöllunarefni ljóðanna er frjálst, þau geta verið um allt það sem brennur á þátttakendum.

Skilafrestur er til og með 2. desember 2020. Vinsamlegast merkið ljóðin með nafni, bekk og skóla nemenda.

Senda má ljóðin í keppnina rafrænt á netfangið [email protected] eða með bréfpósti:

Menntamálastofnun
Ljóðaflóð
B.t. Elínar Lilju Jónasdóttur
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi

 

skrifað 06. NóV. 2020.