Við minnum á skriftaræfingar fyrir byrjendur þar sem efninu er raðað skv. stafainnlögn Lestrarlandsins. Aftan á hverju skriftarblaði eru línur sem nemendur geta nýtt til frjálsrar ritunar. Í efninu eru einnig krotæfingar og stafablöð þar sem stafdráttur er sýndur.
Búið er að afskrifa bækurnar Skrift 1 og Skrift 6 en nýtt skriftarefni er í vinnslu.