1. Forsíða
  2. Næstu íslenskupróf verða haldin í nóvember

Næstu íslenskupróf verða haldin í nóvember

Skráningar vegna næstu íslenskuprófa fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt hefjast 17. september og standa til 31. september.  Mímir - Símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt. 

Næstu íslenskupróf verða sem hér segir:

  • Akureyri – þriðjudaginn 13. nóv. kl 13:00
  • Ísafjörður – miðvikudaginn 14. nóv. kl. 13:00
  • Egilsstaðir – fimmtudaginn 15. nóv. kl. 13:00
  • Prófalota í Reykjavík verður 19. – 23. nóv kl. 13:00 og sérlota mánudaginn 26. nóv.

 

Um prófið
Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verður haldið tvisvar á ári, að vori og hausti.  Prófið miðast við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins.  Markmiðin eru að umsækjandi þarf:

  • að geta bjargað sér við daglegar aðstæður í skóla, vinnu og einkalífi;
  • að geta bjargað sér við óvæntar aðstæður
  • að hafa öðlast nægilegt vald á orðaforða til að geta tekið þátt í umræðum um kunnugleg málefni
  • að geta skilið einfaldar samræður milli manna;
  • að geta lesið stutta texta á einföldu máli um kunnugleg efni
  • að geta skrifað stuttan texta á einföldu máli um kunnugleg efni
  • að geta greint aðalatriði í ljósvakamiðlum, sjónvarpi og útvarpi, þegar um kunnugleg efni er að ræða.

Í prófunum skal reynt á tal, hlustunarskilning, ritun og lesskilning.
Ekki verður gefin einkunn, heldur aðeins tilkynnt hvort próftaki hafi staðist lágmarkskröfur.

Sýnispróf/Practice examination

Applying for Icelandic citizenship?  Further information at www.utl.is

skrifað 04. SEP. 2018.