1. Forsíða
  2. Námsefni í dönsku - Scooter

Námsefni í dönsku - Scooter

Bókin Scooter er léttlestrarbók í dönsku fyrir unglingastig grunnskóla. Hún fjallar um vinina Noa og Hugo sem taka vespu ófrjálsri hendi. 

Bókin getur vakið nemendur til umhugsunar um vináttu, ólíkar heimilisaðstæður strákanna og viðbrögð foreldra við hvarfi Noa.

Finna má bókina á rafrænu formi og sem hljóðbók inni á læstu svæði kennara. Þá má einnig finna tillögur um hvernig vinna má með efni bókarinnar. 

skrifað 25. NóV. 2019.