1. Forsíða
  2. Námsefni í íslensku - Bílamúsin

Námsefni í íslensku - Bílamúsin

Bílamúsin er ný bók í flokki Smábóka en þær eru einkum ætlaðar börnum á yngsta stigi grunnskólans sem eru að læra að lesa.

Lítil mús leynist í bílnum hans Péturs. Hann vill losna við músina en verður síðan mjög glaður þegar hún gerir nokkuð sem hann hélt að engin mús gæti gert!

Lestrarbókum Menntamálastofnunar er skipt í fimm þyngdarstig og er Bílamúsin í 4. flokki. 

skrifað 03. JúN. 2019.