1. Forsíða
  2. Námsefni í íslensku - Galdraskólinn

Námsefni í íslensku - Galdraskólinn

Galdraskólinn er lestrarbók í flokknum Sestu og lestu. Efnið hentar börnum á yngsta- og miðstigi sem hafa náð undirstöðuatriðum lestrar. Aftast í bókinni eru nokkur viðfangsefni og fróðleiksmolar sem tengjast galdratrú á Íslandi.

Katja fær óvænt boð um skólavist í galdraskóla og heldur glöð og spennt á heimavistina að Saurbæ. En galdranámið er erfiðara en hún átti von á og í skólanum lendir Katja í ýmsum spennandi ævintýrum. 

Bókinni fylgja lesskilningsverkefni til útprentunar. Í verkefnunum reynir á ályktunarhæfni og skilning, munnlega tjáningu, ritun og málfræði.

skrifað 24. JúN. 2019.