1. Forsíða
  2. Námsefni í íslensku - Kennsluleiðbeiningar með Lesrúnu

Námsefni í íslensku - Kennsluleiðbeiningar með Lesrúnu

Kennsluleiðbeiningar með Lesrúnu, námsefni ætlað nemendum í  3. bekk með sérstaka áherslu á lesskilning.

Í efninu koma fram hugmyndir um hvernig hægt er að útvíkka efnisþættina í bókinni og kveikja áhuga nemenda á efninu. Mikið er lagt upp úr vinnu með orðaforða áður en textinn sjálfur er lesinn, hugað að bakgrunnsþekkingu, ályktun um merkingu óþekktra orða og bent á leiðir til að greina aðalatriði í texta.

Í leiðbeiningunum eru einnig settar fram hugmyndir að ritunar- og málfræðiverkefnum í tengslum við textana í bókinni. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, s.s. samræður, hópavinnu, sköpun o.fl. 

skrifað 20. NóV. 2019.