1. Forsíða
  2. Námsefnishöfundar óskast

Námsefnishöfundar óskast

Menntamálastofnun auglýsir eftir námsefnishöfundum í afmarkað verkefni við að semja kennslubækur og ítarefni í náttúrugreinum fyrir miðstig grunnskólans. Um er að ræða námsefni sem verður unnið samkvæmt tillögum starfshóps í náttúrugreinum.

Mikilvægt er að umsækjendur hafi nokkra þekkingu á viðfangsefninu, einhverja reynslu af grunnskólakennslu, færni í að skrifa læsilegan og auðskilinn texta fyrir miðstig og þekki vel til fjölbreyttra kennsluhátta. Gerður verður verktakasamningur við væntanlegan höfund eða höfunda, þar sem kveðið er  á um umfang verks, verklaun og verktíma. Gert er ráð fyrir að námsefnið verði tilbúið til dreifingar í grunnskóla á árunum  2021-2023.

Einstaklingar jafnt sem hópar eru hvattir til að sækja um. Óskað er eftir að umsóknum fylgi greinargott kynningarbréf þar sem fram koma upplýsingar um menntun og starfsreynslu ásamt öðrum upplýsingum. Fólk  af öllum  kynjum er hvatt  til að  sækja  um.

Umsóknarfrestur er til 2.apríl 2020.

Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected] merkt Náttúrugreinar og nafni umsækjanda/umsækjenda.

Nánari upplýsingar gefur ritstjóri náttúrugreina: Andri Már Sigurðsson, [email protected], s: 514-7500

skrifað 27. MAR. 2020.