1. Forsíða
  2. Niðurstöður PISA 2018 liggja fyrir

Niðurstöður PISA 2018 liggja fyrir

Niðurstöður nýrrar PISA-könnunar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) liggja nú fyrir. Könnunin var lögð fyrir 15 ára nemendur á Íslandi vorið 2018. PISA er alþjóðlegt könnunarpróf, sem framkvæmt er á þriggja ára fresti í 79 löndum. Kannaður er lesskilningur og læsi á stærðfræði og náttúruvísindi en ein greinanna er áherslugrein í hvert sinn. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á lesskilning.

Meðal helstu niðurstaðna um Ísland í PISA 2018 er:

  • Frammistaða íslenskra nemenda í lesskilningi í heild hefur ekki breyst marktækt frá síðustu könnun PISA árið 2015 en þó hefur nemendum sem ekki ná grunnhæfniviðmiðum lesskilnings fjölgað hlutfallslega. Þeir telja nú 26% þátttakenda í heild, 34% drengja en 19% stúlkna. Frammistöðu hefur hrakað marktækt í samanburði við árið 2009 þegar lesskilningur var síðast aðalsvið PISA-könnunarinnar. Samantekið er  frammistaða í lesskilningi á Íslandi mun lakari en á öðrum Norðurlöndum og áfram nokkuð undir meðaltalinu í löndum OECD.
     
  • Íslenskir nemendur stóðu sig í heild marktækt betur í læsi á stærðfræði en í síðustu könnun PISA og eru rétt yfir meðaltalinu í löndum OECD. Þá náðu hlutfallslega fleiri stúlkur grunnhæfniviðmiðum PISA í læsi á stærðfræði en í síðustu könnun.
     
  • Frammistaða íslenskra nemenda í læsi á náttúruvísindi er óbreytt frá því í síðustu könnun. Íslenskir nemendur standa áfram verr að vígi á þessu sviði en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum og að meðaltali í löndum OECD.

PISA-könnunin var lögð fyrir í 79 ríkjum árið 2018 og hérlendis tóku 87% allra 15 ára nemenda þátt. Niðurstöðurnar eru kynntar samtímis í öllum þátttökuríkjunum nú að morgni 3. desember. Menntamálastofnun hefur tekið saman skýrslu úr gögnum PISA-könnunarinnar sem nálgast má hér. Þar er fjallað um helstu niðurstöður fyrir íslenska nemendur og þær bornar saman við niðurstöður annarra þátttökuríkja.

Skýrslan verður kynnt á opnum fundi Menntamálastofnunar og menntavísindasviðs Háskóla Íslands kl. 14:30 í dag, í húsakynnum Háskólans við Stakkahlíð. Sjá dagskrá fundarins hér.

Fundinum verður streymt beint hér

skrifað 02. DES. 2019.