1. Forsíða
  2. Nýr kennsluvefur fyrir börn opnaður

Nýr kennsluvefur fyrir börn opnaður

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra opnaði kennsluvefinn Icelandic Online fyrir börn við hátíðlega athöfn í Vigdísarstofu í Veröld – húsi Vigdísar þann 18. apríl, á fyrsta degi Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur 2023.

Icelandic Online fyrir börn er gagnvirkt námsefni með leikjaívafi í íslensku sem öðru máli fyrir börn á leikskólaaldri og í fyrstu bekkjum grunnskóla. Á kennsluvefnum eru sjö námskeið í mismunandi þyngdarstigum. Markhópurinn er 5-7 ára börn sem eiga erlent mál að móðurmáli og íslensk börn sem alist hafa upp í öðru málumhverfi og eru að byrja að lesa. Efnið mun einnig nýtast sem ítarefni við móðurmálsnám en í því er sérstök áhersla lögð á skólamál og mál námsbóka. Námskeiðið tekur mið af aðalnámskrá leik- og grunnskóla og nýtir sér vefnámskeiðaumhverfi Icelandic Online sem hentar bæði tölvum og snjalltækjum. Kennsluvefurinn er gjaldfrjáls og öllum opinn. Verkefnið hlaut styrki frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Barnavinafélaginu Sumargjöf, Styrktarsjóði Áslaugar Hafliðadóttur, þróunarsjóði innflytjendamála og þróunarsjóði námsgagna.

Vefurinn verður hýstur hjá Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands en er einnig aðgengilegur á Fræðslugátt

Ljósmyndari: Kristinn Ingvason

skrifað 25. APR. 2023.