1. Forsíða
  2. Nýtt á Læsisvefnum | Hvað veistu um viðfangsefnið?

Nýtt á Læsisvefnum | Hvað veistu um viðfangsefnið?

Lesskilningsaferðin Hvað veistu um viðfangsefnið? er komin út á Læsisvefum.

Aðferðin er notuð til að vekja áhuga nemenda á viðfangsefni áður en það er lagt fyrir og kennir þeim að vera virkir leitendur upplýsinga og hugmynda við lestur á texta.

Aðferðin hentar vel við lestur á fræðitexta, t.d. í náttúru- og samfélagsfræðigreinum en einnig má styðjast við hana við lestur á skáldsögum þar sem fengist er við flókin samfélagsleg viðfangsefni svo dæmi séu tekin.

skrifað 14. JAN. 2021.