1. Forsíða
  2. Nýtt efni í íslensku fyrir mið- og unglingastig

Nýtt efni í íslensku fyrir mið- og unglingastig

Geimurinn er lestrarbók í flokknum Heimur í hendi fyrir nemendur á mið- og unglingastigi. Í bókinni er m.a. skoðað hvernig mennirnir hafa nýtt sér stjörnur til að búa til tímatal og siglt yfir úthöfin áður fyrr. Farið er um borð í geimstöð og þeirri spurningu velt upp hvort líf sé á öðrum hnöttum. Aftast eru orðskýringar og fjölbreytt verkefni.

Annar Smellur er nemendabók sem þjálfar lesskilning hjá nemendum á miðstigi. Í bókinni er að finna mismunandi texta, ásamt verkefnum til þjálfunar. Meginþemað eru hrafnar en víða er leitað fanga eftir textum.

 

 

 

skrifað 15. NóV. 2018.