1. Forsíða
  2. Nýtt námsefni í textílmennt - Að vefa utan vefstóls

Nýtt námsefni í textílmennt - Að vefa utan vefstóls

Með þessu verkefnahefti er markmiðið að kynna og vekja áhuga nemenda á vefnaði sem er ein af grunnaðferðum textílgreinarinnar. Að sýna fram á að hægt sé að læra grunnatriði í vefnaði án mikillar fyrirhafnar og á skapandi hátt.  

Í verkefnaheftinu eru hugmyndir að verkefnum sem unnin eru fyrir utan hefðbundinn vefstól með endurnýtingu að leiðarljósi. Unnið er með fjölbreyttar vefuppistöður sem fá nýjan tilgang í tilverunni. 

Verkefnin henta vel nemendum á miðstigi grunnskólans en hægt er að aðlaga þau að yngri og eldri nemendum. Útfæra má verkefnin á marga vegu. 

skrifað 10. DES. 2019.