1. Forsíða
  2. Nýtt námsefni | Lifandi náttúra - Lífbreytileiki á tækniöld

Nýtt námsefni | Lifandi náttúra - Lífbreytileiki á tækniöld

Út er komið námsefnið Lifandi náttúra - Lífbreytileiki á tækniöld sem er safn verkefna sem tengjast á einhvern hátt lífbreytileika (líffræðilegri fjölbreytni). Unnið er með viðfangsefnið á fjölbreyttan máta þar sem hvert verkefni getur verið sjálfstætt verkefni eða hluti af stærri heild. 

Áherslur námsefnisins eru að það stuðli að útiveru, hreyfingu, samvinnu, nýti snjalltæki og sé verkefnamiðað. Efnið er hugsað sem leiðbeiningar fyrir kennara til að vinna með lífbreytileika á verklegan og fjölbreyttan máta. 

Verkefni í rafbókinni er ætluð nemendum á yngsta stigi grunnskóla en einnig er hægt að nýta hana í eldri hópum leikskóla. 

Verkefnið er samstarfsverkefni Landverndar og Menntamálastofnunar og er gefið út í tenglsum við verkefnið Skólar á grænni grein. 

 

skrifað 21. JAN. 2021.