Fyrir skömmu voru tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna kynntar. Það er okkur mikil ánægja að greina frá því að þar á meðal er Ólafur Schram, tónmenntakennari í Sjálandsskóla og námsefnishöfundur, en hann er tilnefndur fyrir framúrskarandi tónlistarkennslu, námsefnisgerð og þróunarstarf.
Auk kennslu hefur Ólafur komið að endurskoðun aðalnámskrár og samið námsefni í tónlist sem Menntamálastofnun gefur út. Efnið sem hann samdi fyrir Menntamálastofnun er Tónlist og Afríka, Tónlist og líkaminn og Tónlist og tíminn.
Ólafur lýsir megináherslum sínum í kennslu meðal annars með þessum orðum: „Mitt helsta markmið í tónmenntakennslu er að skapa aðstæður í tónmenntastofunni svo nemendur með mismikla færni geti stigið inn í heim tónlistarinnar og upplifað galdur hennar í samspili, söng og sköpun.“ Þá leggur hann mikla áherslu á samþættingu tónmenntar við aðrar greinar, en þverfaglegt starf er eitt af einkennum Sjálandsskóla sem hann kennir við nú. Um þetta segir hann: „Með samþættingu fær tónlistin aukna merkingu í huga nemandans á sama tíma og iðkun tónlistar gefur nemendum tækifæri á að tengjast viðfangsefnum með upplifun sem aðrar námsgreinar eiga erfiðara með að veita.“
Meðal þess sem kom fram í umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefninguna er:
Ólafur er einstakur fagmaður með brennandi áhuga á starfi sínu sem á auðvelt með að kveikja áhuga hjá nemendum sínum. Hjá Ólafi fá nemendur að kynnast tónlist á fjölbreyttan hátt, fá að skapa tónlist, læra á hljóðfæri og læra sögu tónlistar. Textar eru krufðir og textar eru samdir. Tungumálin eru skoðuð og jafnvel búið til bullmál. Tónlist er sett í samhengi við sögu, menningu og tíðaranda. Ævintýri verða til.
Við óskum Ólafi innilega til hamingju með tilnefninguna og hlökkum til frekara samstarfs.