1. Forsíða
  2. Opnun lesfimiprófa Lesferils

Opnun lesfimiprófa Lesferils

Þann 1. maí 2018 verður opnað fyrir lesfimiprófin fyrir 1.-10. bekk og verða þau opin til og með 31. maí.

Athygli er vakin á að nú er hægt að nálgast matsramma fyrir lestrarlag með lesfimiprófgögnunum. Rammann á ekki að nota á lesfimprófin sjálf heldur annan aldurssamsvarandi texta t.d. úr heimalestrarbók. Einnig er tilvalið að nota hann oftar og senda hann heim með nemendum líka svo foreldrar sjái hverju stefnt er að. Matsrammanum fylgja leiðbeiningar fyrir kennara, nemendur og foreldra. Matsrammann er hægt að prenta út af vef Menntamálastofnunar.

Aðgengi að prófunum er rafrænt; þau eru vistuð í Skólagátt og geta kennarar nálgast þau þar til útprentunar. Skráning og úrvinnsla niðurstaðna fer einnig fram í gegnum Skólagátt.

Hægt verður að nálgast niðurstöður prófanna á mælaborði strax eftir að fyrirlögn og innslætti er lokið. Þannig er hægt að sjá framfarir og frammistöðu nemenda í lesfimi miðað við lesfimiviðmið Menntamálastofnunar. Þar er einnig hægt að sjá hvert meðaltal lesinna orða er í hverjum árgangi á landsvísu. Einnig er hægt að prenta út einkunnarblað fyrir hvern og einn nemanda.

Lesfimiprófið er staðlað mælitæki og valfrjáls möguleiki en mælst er til að nýta þau til að efla skólastarf. Þau eru fyrst og fremst hugsuð sem verkfæri fyrir viðkomandi skóla og kennara til að  koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Niðurstöður prófanna gera skólum og sveitarfélögum kleift að leggja mat á árangur og auðvelda endurskoðun markmiða í kjölfarið.

Athugið að fyrirlagnartímabilið endar 31. maí.

Leiðbeiningar um Skólagátt má nálgast hér og bendum við sérstaklega á leiðbeiningar með mælaborðinu en fyrirspurnir má einnig senda á [email protected]

skrifað 24. APR. 2018.