1. Forsíða
  2. Orðspor 2 komin út

Orðspor 2 komin út

Út er komin vinnubókin Orðspor 2, ásamt kennsluleiðbeiningum. Orðspor 2 er önnur bókin af þremur í heildstæðu námsefni í íslensku fyrir miðstig. Þá er allt námsefni í Orðspori 2 komið út hjá Menntamálastofnun og vinna við Orðsport 3 er hafin af fullum krafti. 

Hlutverk bókarinnar er að hjálpa nemendum að auka færni sína til að tjá sig bæði munnlega og skriflega. Nemendur læra um netspor, fræðast um geiminn, skoða myndasögur, lesa ljóð og spila á spil. Þeir þjálfast í framsögn, tjáningu og hlustun auk þess að eflast í lestri og ritun.

skrifað 23. SEP. 2016.