1. Forsíða
  2. Orðspor 3 komin út

Orðspor 3 komin út

Orðspor 3 er þriðja og síðasta bókin af heildstæðu námsefni í íslensku fyrir miðstig grunnskóla. Í bókinni læra nemendur um framsögn, ljóðaslamm, fornleifafræði, læsi, ævintýri og málsnið. Nemendur grúska í mismunandi textagerðurm og eflast í lestri og ritun. Þá þjálfast þeir einnig í því að taka rökstudda afstöðu og að komast að málamiðlunum.

Bókin skiptist í sjö kafla:

  • Hækkaðu röddina!
  • Geggjað slamm hjá þér
  • Aftur til fortíðar
  • Læsi og lesfimi
  • Eru Grimmsævintýrin grimm?
  • Af máli má manninn þekkja
  • Skólanum hefur borist bréf
skrifað 29. MAí. 2017.