1. Forsíða
  2. Óskað er eftir áhugasömum við gerð matsviðmiða

Óskað er eftir áhugasömum við gerð matsviðmiða

Menntamálastofnun óskar eftir áhugasömum kennurum og öðrum sérfræðingum til að taka þátt í samstarfi við gerð matsviðmiða fyrir 4. og 7. bekk.

Stofnaðir verða sex hópar sem hver um sig mun vinna tillögu að matsviðum sem síðar munu fara í samráðsferli á vegum ráðuneytisins.

Matsviðmið verða samin í eftirfarandi námssviðum:

  • Listgreinar
  • Verkgreinar
  • Samfélagsgreinar
  • Náttúrugreinar
  • Skólaíþróttir
  • Upplýsinga- og tæknimennt

Vinnan fer fram á sérstökum fundum í húsnæði Menntamálastofnunar og krefst nokkurs undirbúnings. Vinnan fer einnig í gegnum fjarfundi, tölvupósta og samfélagsmiðla.

Mikilvægt að viðkomandi aðili hafi áhuga á að semja matsviðmið og hafi reynslu af kennslu í viðkomandi námsgrein. Kostur ef viðkomandi getur átt samtal um verkefnið og framvindu þess við aðila skólasamfélagsins. Þá þarf viðkomandi að þekkja aðalnámskrá grunnskóla vel.

Verkefnið verður unnið á tímabilinu frá 12. nóvember 2018 til 31. janúar 2019.

Greitt er fyrir fundarsetu. Komið verður til móts við þá sem koma langt að varðandi ferðakostnað.

Áhugasamir eru beðnir um að senda stutta umsókn til Skúla Péturssonar ([email protected]), sérfræðings á Menntamálastofnun fyrir 9. nóvember.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Óskarsson, sviðsstjóri matssviðs.

skrifað 02. NóV. 2018.