1. Forsíða
  2. PISA í hnotskurn

PISA í hnotskurn

PISA í hnotskurn – Staða íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði er heiti á fundaröð sem hefur göngu sína þann 3. febrúar og lýkur 9. mars næstkomandi.

Haldnir verða alls fjórir fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntamálastofnunar og Kennarasambands Íslands þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2018.

Fundirnir verða haldnir á mánudögum kl. 15:00 -16:30 í stofu H207 í húsakynnum Menntavísindasviðs við Stakkahlíð en fundunum verður einnig streymt.

Dagskráin verður sem hér segir:

Greining á stöðu lesskilnings - mánudagur 3. febrúar
Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun.
Sigríður Ólafsdóttir, lektor og Baldur Sigurðsson, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Streymi

Greining á stöðu læsis á náttúruvísindi - mánudagur 17. febrúar 
Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun.
Auður Pálsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Streymi

Greining á stöðu læsis á stærðfræði - mánudagur 2. mars
Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun.
Freyja Hreinsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Streymi

PISA  ─ og hvað svo? - mánudagur 9. mars.
Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands.
Grunnskólinn: Áskoranir og tækifæri
Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Streymi

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Um PISA
Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2018. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna.

PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.

skrifað 03. FEB. 2020.