Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun efna til fundaraðar um niðurstöður PISA 2015.
Á þessum þriðja fundi PISA í hnotskurn mun Auður Pálsdóttir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands ræða um greiningu á stöðu læsis í náttúrufræði.
Fundirnir verða sendir beint út og verða inn tenglar fyrir hverja málstofu auglýstir.
Fyrirlestrarnir fara fram fimmtudaga frá klukkan 15:00 – 16:30 í stofu H205 í húsnæði Menntavísindasvið í Stakkahlíð.